148. löggjafarþing — 3. fundur,  15. des. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[19:18]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla bara að þakka fyrir þetta og er sammála hv. þingmanni um að þegar við leggjum fram samgönguáætlun og fjármálaáætlun sé þar samspil. Ég þakka fyrir stuðninginn við að fá meira fé í viðhald og framkvæmdir í samgöngum. Ég veit að það eru margir áhugamenn um það í þessum sal.