148. löggjafarþing — 5. fundur,  19. des. 2017.

fæðingar- og foreldraorlof.

24. mál
[17:35]
Horfa

Flm. (Silja Dögg Gunnarsdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000. Meðflutningsmenn mínir eru þingflokkur Framsóknarflokksins; hv. þm. Líneik Anna Sævarsdóttir, Willum Þór Þórsson, Þórunn Egilsdóttir og Halla Signý Kristjánsdóttir. Lagt er til að á eftir 17. gr. laganna komi ný grein, 17. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

„Foreldrar sem þurfa að sækja fæðingarhjálp utan heimabyggðar.“

Á eftir 22. gr. laganna kemur ný grein, 22. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

„Foreldrar sem þurfa að sækja fæðingarhjálp utan heimabyggðar.“

Lagt er til að lög þessi öðlist þegar gildi.

Frumvarp þetta var fyrst lagt fram á 144. löggjafarþingi og endurflutt á 145., 146. og 147. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu. Það er nú lagt fram óbreytt.

Með fæðingarhjálp er í frumvarpi þessu átt við hverja þá aðstoð eða þjónustu sem veitt er af faglærðu heilbrigðisstarfsfólki í tengslum við tilvonandi eða yfirstandandi fæðingu og almennt er talin nauðsynleg til að tryggja eins vel og verða má líf og heilbrigði barns og móður eftir fæðingu. Hópi fólks stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingarhjálp í heimabyggð og þarf því að dveljast fjarri heimili sínu fyrir fæðingu til að vera í öruggri nálægð við fæðingarhjálp þegar að fæðingu kemur. Af þessu getur stafað nokkur aðstöðumunur milli þessa hóps og þeirra sem kost eiga á fæðingarhjálp í heimabyggð og þurfa því ekki að dveljast annars staðar meðan beðið er fæðingar. Þessu frumvarpi er ætlað að leiðrétta hluta þess aðstöðumunar.

Með frumvarpinu er annars vegar lagt til að foreldrum sem þurfa að dveljast utan heimilis til að vera í öruggri nálægð við fæðingarhjálp og geta ekki vegna vegalengdar eða landfræðilegra aðstæðna sótt heimili sitt daglega verði heimilað að hefja fæðingarorlof eða töku fæðingarstyrks þremur vikum fyrir áætlaðan fæðingardag, sem staðfestur skal með læknisvottorði, eða fyrr ef staðfest er með læknisvottorði að þess sé þörf. Almennt er talið ráðlegt að barnshafandi konur séu nálægt fæðingarstað ekki síðar en þremur vikum fyrir áætlaðan fæðingardag, eða í 38. viku meðgöngu miðað við 40 vikna meðallengd meðgöngu. Frumvarpið gerir þó ráð fyrir að foreldrar geti hafið fæðingarorlof eða töku fæðingarstyrks fyrr ef staðfest er með læknisvottorði að þess gerist þörf að móðir sé fyrr nálægt fæðingarstað. Mat á því hvort þess sé þörf að barnshafandi móðir dveljist fjarri heimili sínu til að vera í öruggri nálægð við fæðingarhjálp fyrir fæðingu er fyrst og fremst læknisfræðilegt. Alla jafna má ætla að sú fæðingarhjálp dugi sem býðst í umdæmissjúkrahúsum, samanber 3. málslið 1. mgr. 18. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Í sérstökum tilvikum gæti foreldrum þó verið nauðsynlegt af læknisfræðilegum ástæðum að sækja sérhæfðari þjónustu annað. Það getur t.d. átt við í tilviki fjölburafæðinga og þegar vandamál í fæðingu eru fyrirsjáanleg. Rétt er að miða við að hitt foreldrið geti þurft að dveljast fjarri heimabyggð samtímis barnshafandi móður.

Í frumvarpinu er miðað við þriggja vikna tilkynningarfrest til samræmis við það viðmið sem fram kemur í 2. málslið 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 23. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof. Þó er gert ráð fyrir að heimilt verði að víkja frá þeim fresti ef ófyrirséð er hvenær foreldrar þurfa að hefja fæðingarorlof eða töku fæðingarstyrks. Það gæti átt við þegar upp koma óvæntir atburðir sem krefjast þess að foreldrar dveljist nálægt fæðingarhjálp fyrr en ráð var fyrir gert. Að öðru leyti er ráðgert að hvort foreldri fyrir sig sæki um greiðslur í fæðingarorlofi eða fæðingarstyrk til samræmis við gildandi reglur laganna.

Með frumvarpinu er hins vegar lagt til að réttur foreldra til fæðingarorlofs eða -styrks framlengist sem nemur þeim tíma sem þeir þurfa að dveljast fjarri heimili til að vera í öruggri nálægð við fæðingarhjálp. Að öðrum kosti ættu foreldrar, sem þurfa að nýta fæðingarorlof eða -styrk til að sækja fæðingarhjálp fjarri heimili sínu, að öðru jöfnu minna fæðingarorlof eða -styrk eftir til að nýta til umönnunar og samvista við börn sín eftir fæðingu en foreldrar sem búa þar sem fæðingarþjónusta er í heimabyggð. Sú staða er andstæð jafnræðissjónarmiðum og ekki barni fyrir bestu, samanber 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sem veitt hefur verið lagagildi hérlendis með lögum nr. 19/2013. Gert er ráð fyrir að framlenging fæðingarorlofs nemi þeim dagafjölda sem foreldri dvelst utan heimilis, sem miðast jafnan við tímabilið frá því að foreldri fer frá heimili til að vera nálægt fæðingarhjálp og fram að fæðingu barns. Þar sem greiðsla fæðingarstyrks miðast aðeins við heila mánuði er gert ráð fyrir að framlenging hans nemi að jafnaði einum mánuði, en geti þó numið tveimur mánuðum ef sérstakar aðstæður krefjast þess að foreldri dveljist lengur fjarri heimili. Þá er gert ráð fyrir að foreldrum sem hefja töku fæðingarstyrks fyrr en ella vegna slíkra aðstæðna verði heimilað að skipta töku styrksins upp í tímabil, sem jafnan er óheimilt. Kallar þetta á breytingu á 6. mgr. 14. gr. reglugerðar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, nr. 1218/2008.

Er ræðutími minn búinn, herra forseti?

(Forseti (ÞorS): Forseti viðurkennir að klukkan er aðeins að stríða okkur en forseti hefur stjórn á ræðutímanum. Hann er núna um það bil fimm mínútur.)

Þannig að hv. þingmaður hefur fimm mínútur til viðbótar?

(Forseti (ÞorS): Já.)

Að því sögðu langar mig að nefna nokkur atriði til viðbótar, þ.e. utan greinargerðar sem fylgir frumvarpinu. Eins og ég sagði leiðréttir frumvarpið, ef það fæst samþykkt, ekki þann aðstöðumun sem er á fólki hér á landi varðandi aðgengi að öruggri heilbrigðisþjónustu. Í því samhengi langar mig að ræða aðeins um þann húsnæðiskostnað sem fólk af landsbyggðinni þarf að leggja út fyrir þegar það þarf að dvelja fjarri heimili sínu vikum og jafnvel mánuðum saman fyrir fæðingardag barnsins. Það eru oft háar upphæðir. Fólk dvelur kannski þrjár til sjö vikur og jafnvel lengur fjarri heimili sínu og þarf að leigja húsnæði.

Sú sem hér stendur þekkir til þess að fólk taki svokallaðar Airbnb-íbúðir á leigu. Sumir hafa aðgang að verkalýðsbústöðum, sem er þá hagkvæmara. Og sumir eiga fjölskyldur og vini sem geta hýst þá, en ekki allir.

Það er líka ákveðnum vandkvæðum bundið að fá inni hjá öðrum fjölskyldum þegar jafnvel fleiri börn eru með í för. Það er sem sagt ekki lítið mál og mjög kostnaðarsamt. Fjárhagsáhyggjur bætast ofan á áhyggjur af öllu öðru hjá verðandi foreldrum, sem er alls ekki gott fyrir móður eða barn.

Til viðbótar við fjárútlát vegna húsnæðis kemur einnig launalaust leyfi fyrir maka. Það þarf að taka börn úr skólum ef fleiri börn eru til staðar, sem skapar mikið rót í fjölskyldulífinu og óöryggi þegar um erfið ferðalög er að ræða yfir sjó og land, jafnvel, í alls konar veðrum.

Samkvæmt upplýsingum mínum koma dreifbýlar þjóðir eins og Grænlendingar og Færeyingar til móts við verðandi foreldra sem búa fjarri fæðingarþjónustu með húsnæðisstyrk. Ég tel skynsamlegt að við könnum að minnsta kosti hvernig nágrannar okkar í norðri standa að þessum málum og íhugum í framhaldinu hvort þær leiðir sem þeir hafa kosið að fara henti okkar aðstæðum.

Annað atriði sem rétt er að nefna í þessu samhengi er hvernig við ætlum að uppfylla að fullu lög um heilbrigðisþjónustu. Við getum það kannski aldrei alveg en við getum þó farið nær því en nú er að uppfylla núgildandi lög um heilbrigðisþjónustu, þ.e. að tryggja öllum jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu svo hér gildi fullt jafnræði. Svo er ekki nú.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð rík áhersla á byggðamál, að allir Íslendingar sitji við sama borð gagnvart opinberri þjónustu. Í sama sáttmála er einnig lögð rík áhersla á uppbyggingu heilbrigðiskerfisins. Þær breytingar sem lagðar eru til með þessu frumvarpi falla því vel að áherslum ríkisstjórnarinnar. Þó svo að lagabreytingin heyri undir almannatryggingar fjallar breytingin einnig um heilbrigðiskerfið í heild sinni, hvernig við sjáum það net þróast til framtíðar, hvernig við tryggjum öllum Íslendingum jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Við Framsóknarmenn gerðum það að forgangsmáli okkar á síðasta þingi að gerð yrði heilbrigðisáætlun fyrir Ísland. Auðvitað er bráðnauðsynlegt að litið sé á heilbrigðiskerfi okkar sem eina heild og áætlanir um uppbyggingu þess miðist við langtímaáætlanir. Þingsályktunin um gerð heilbrigðisáætlunar var samþykkt á 147. þingi á Alþingi og vinnan við gerð áætlunarinnar á sér nú stað í ráðuneytinu. Ég hlakka mikið til að sjá útkomu þeirra vinnu.

En staðan er þessi, hæstv. forseti: Þeim stöðum sem veita fæðingarþjónustu hefur fækkað hin síðari ár en fátt komið í staðinn af hálfu ríkisins til að koma til móts við verðandi foreldra til að tryggja jöfnuð þeirra og barna þeirra. Við skulum breyta því.

Ég óska eftir því að frumvarpið gangi til hv. velferðarnefndar að umræðu lokinni.