148. löggjafarþing — 6. fundur,  21. des. 2017.

tilhögun þingfundar.

[10:33]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill láta þess getið að hann lítur svo á að samkomulag sé um það milli forseta og þingflokksformanna að þingfundir í dag standi þar til umræðum um dagskrármálin er lokið.

Forseti áformar að hefja atkvæðagreiðslu um afbrigði upp úr kl. 11.

Forseti vill tilkynna að hann hyggst hitta formenn þingflokka síðdegis í dag.