148. löggjafarþing — 13. fundur,  30. des. 2017.

þingfrestun.

[00:24]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 148. löggjafarþings, frá 29. desember 2017 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 22. janúar 2018.

Gjört á Bessastöðum, 28. desember 2017.

Guðni Th. Jóhannesson.

________________

Katrín Jakobsdóttir.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 148. löggjafarþings, er frestað.

Ég vil nota tækifærið og þakka alþingismönnum og starfsfólki Alþingis fyrir gott samstarf við óvanalegar aðstæður á þingi. Ég þakka kærlega fyrir hversu miklu starfi hefur verið skilað hér á örfáum dögum og hlakka til að sjá ykkur öll aftur á nýju ári.