148. löggjafarþing — 14. fundur,  22. jan. 2018.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[15:08]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar sem gerir ráð fyrir að formenn allra stjórnmálaflokka, eða talsmenn, taki til máls og hafi til þess tíu mínútur hver. Andsvör verða leyfð en óski fleiri en fjórir þingmenn eftir að veita andsvör gilda rýmri reglur þannig að allir stjórnarandstöðuflokkar eigi þess kost að veita andsvör við ræðum stjórnarliða og er þá ræðutími að sjálfsögðu aðeins ein mínúta í báðum umferðum.

Röð flokkana verður eftirfarandi: Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Samfylkingin, Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Flokkur fólksins og Viðreisn.