148. löggjafarþing — 21. fundur,  5. feb. 2018.

varamaður tekur þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá 9. þm. Reykv. s., Lilju Alfreðsdóttur, um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Alex Björn Bulow Stefánsson.

Kjörbréf hans hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki tekið sæti á Alþingi áður og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Alex Björn Bulow Stefánsson, 9. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]