148. löggjafarþing — 28. fundur,  22. feb. 2018.

vestnorrænt samstarf um menntun í sjávarútvegsfræðum.

117. mál
[12:43]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar, sem er að finna á þskj. 186, fyrir hönd Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, um vestnorrænt samstarf um menntun í sjávarútvegsfræðum.

Tillagan hljóðar á þessa leið:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að kanna möguleikann á samstarfi milli Íslands, Færeyja og Grænlands um menntun í sjávarútvegsfræðum.“

Í greinargerð segir að tillaga þessi sé lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 2/2017 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 1. september 2017 í Reykjavík.

Fiskveiðar eru ein mikilvægasta atvinnugreinin á Vestur-Norðurlöndum og útflutningur sjávarfangs stendur undir háu hlutfalli útflutningstekna landanna. Sjávarútvegsráðherrar Vestur-Norðurlanda eiga nú þegar gott samstarf sín á milli, m.a. á vettvangi norrænu ráðherranefndarinnar, auk þess sem rannsóknarstofnanir landanna eiga náið samstarf. Með auknu samstarfi á vettvangi sjávarútvegsfræða gætu löndin deilt með sér reynslu og þekkingu á fiskvinnslu.

Fyrsta skrefið í þá átt gæti verið samstarf um starfsþjálfun á vettvangi fisktækni og gæðaeftirlits. Menntun í fisktækni stuðlar að bættri nýtingu sjávarafurða og hvetur til nýsköpunar í atvinnugreininni. Í löndunum þremur er í boði menntun á sviðinu, t.d. í Fisktækniskóla Íslands í Grindavík, INUILI í Narsaq á Grænlandi og á menntaskólastigi í Færeyjum. Með skiptinámi milli landanna væri hægt að bjóða upp á fjölbreytta grunnmenntun í fiskveiðum, fisktækni og gæðaeftirliti með áherslu á starfsnám. Með þessu samstarfi gætu löndin aukið þekkingu og gæði í matvælaframleiðslu í sjávarútvegi og skapað nemendum starfstækifæri og möguleika á frekari menntun á sviðinu. Framhaldsmenntun í sjávarútvegi er t.d. í boði í BS-námi í sjávarútvegsfræðum í Háskólanum á Akureyri, diplómanámi í fisktækni við ARTEK – fisktæknimiðstöðina í Sisimiut og í Sjávarútvegsháskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Samstarf um menntun í sjávarútvegsfræðum gagnast öllum þremur löndunum. Í hverju landanna er að finna sérþekkingu á ólíkum málefnum innan sjávarútvegsins og kljást löndin á margan hátt við sömu áskoranir. Alþingi hvetur því mennta- og menningarmálaráðherra til að kanna möguleika á samstarfi við menntamálaráðherra Grænlands og Færeyja um menntun í sjávarútvegi.

Herra forseti. Ég legg hér með fram þessa tillögu. Hún miðar að því að vinna að hagnýtum mikilvægum hagsmunum sameiginlega á þessu sviði, miðla þekkingu sem er orðin talsverð í öllum þessum löndum. Er fyrirliggjandi áhugi á að efla þetta samstarf enn og verður unnið að því ef íslensk stjórnvöld taka þá ákvörðun.