148. löggjafarþing — 28. fundur,  22. feb. 2018.

ráðstefna um stöðu Íslands, Færeyja og Grænlands í nýjum veruleika alþjóðastjórnmála.

118. mál
[12:48]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar fyrir hönd Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, sem er að finna á þskj. 187, um að halda ráðstefnu um stöðu Íslands, Færeyja og Grænlands í nýjum veruleika alþjóðastjórnmála.

Tillagan er svohljóðandi:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að halda ráðstefnu um stöðu Vestur-Norðurlanda (Íslands, Færeyja og Grænlands) í nýjum veruleika alþjóðastjórnmála.“

Í greinargerð segir:

Tillaga þessi er lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 3/2016 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 22. ágúst 2016 í Qaqortoq á Grænlandi.

Eftir lok kalda stríðsins urðu vestnorrænu löndin þrjú í auknum mæli jaðarsvæði í alþjóðastjórnmálum þar sem sviðsljósið beindist að Mið-Austurlöndum og Kína. Rússar og Bandaríkjamenn skáru niður í vopnabúrum sínum og m.a. var í áföngum dregið úr starfsemi herstöðva í vestnorrænu löndunum þremur.

Á síðustu árum hafa aftur orðið mikil umskipti í alþjóðastjórnmálum. Rússland hefur átt þátt í ýmsum átökum í Evrópu, straumur flóttamanna frá Mið-Austurlöndum og Afríku til Evrópu hefur aukist verulega og hryðjuverkaógnin virðist einnig hafa aukist. Í Tyrklandi gerði herinn tilraun til valdaráns og stefna Tyrkja gagnvart Evrópu hefur breyst verulega. Jafnframt hefur áhugi Kínverja á umheiminum aukist og þeir hafa m.a. beint sjónum sínum að Vestur-Norðurlöndum.

Það eru einkum deilur Rússa og NATO sem hafa beint sjónum manna á ný að Vestur-Norðurlöndum í alþjóðastjórnmálunum, en flóttamannastraumurinn og aukinn áhugi Kínverja á vestnorrænu löndunum hefur einnig átt sinn þátt í þessari þróun.

Viðbúið er að fyrirspurnir sem tengjast alþjóðastjórnmálum muni berast löndunum þremur. Til dæmis er hugsanlegt að NATO vilji á ný efla herstöðvar við Norður-Atlantshaf.

Öll vestnorrænu löndin eru herlaus, eiga aðild að NATO og eru á sama landfræðilega svæðinu. Löndin gætu því gegnt sams konar hlutverki í átökum framtíðarinnar og markmið ráðstefnunnar væri að búa löndin undir að takast á við nýtt framtíðarhlutverk á vettvangi alþjóðastjórnmálanna.

Herra forseti. Ég legg þessa tillögu fram með þeim væntingum að hún fái vandaða umfjöllun utanríkismálanefndar.