148. löggjafarþing — 50. fundur,  16. apr. 2018.

viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[15:10]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseta er sá vandi á höndum að enn eru nokkrir á mælendaskrá sem vilja ræða fundarstjórn og áður en forseti svarar er kannski ágætt að heyra hvað mönnum liggur á hjarta. En ég mun svara þeim spurningum sem fram hafa komið þegar mælendaskrá um fundarstjórn forseta hefur verið tæmd. Ég ætla að minnsta kosti að hleypa að fulltrúum allra þingflokka áður en ég gríp inn í umræðuna.