148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

kosning ríkisendurskoðanda skv. 2. gr. laga nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, til sex ára frá 1. maí 2018.

[16:22]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Tekið er fyrir 1. dagskrármálið, kosning ríkisendurskoðanda samkvæmt 2. gr. laga nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, til sex ára, frá 1. maí 2018.

Um kosninguna gildir ákvæði í 7. mgr. 82. gr. þingskapa sem segir að þegar kjósa á um einn mann séu þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru og eigi hreyfa andmælum við því.

Samkvæmt 2. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016, gerir forsætisnefnd tillögu til Alþingis um einstakling til að gegna embætti ríkisendurskoðanda. Á fundi forsætisnefndar í morgun var einróma samþykkt að gera tillögu um Skúla Eggert Þórðarson í embættið. Aðrar tilnefningar hafa ekki borist forseta innan þess frests sem lög ákveða og er hann því einn í kjöri. Forseti hefur ákveðið að kosningin verði með atkvæðagreiðslukerfinu eins og þingsköp heimila. Henni má jafna við leynilega skriflega kosningu.

Atkvæðagreiðslukerfið verður nú þannig stillt að töflurnar á veggjunum munu aðeins sýna hverjir hafa greitt atkvæði en ekki hvernig þeir greiddu atkvæði. Hið sama gildir um geymsluminni tölvunnar. Þeir sem kjósa Skúla Eggert Þórðarson ýti á já-hnappinn en þeir sem vilja skila auðu ýti á hnappinn sem merktur er: Greiðir ekki atkvæði. Nei-takkinn er óvirkur. Gult ljós kviknar við miðhnappinn á borðum þingmanna þegar atkvæði hefur verið greitt, sama á hvorn hnappinn menn hafa ýtt. Eins kviknar aðeins gult ljós á veggtöflum.

 

[Gengið var til kosningar. Atkvæði féllu þannig að Skúli Eggert Þórðarson hlaut 50 samhljóða atkvæði en 13 voru fjarverandi.]

Ég lýsi því Skúla Eggert Þórðarson réttkjörinn ríkisendurskoðanda frá og með 1. maí 2018 til næstu sex ára og fyrir hönd okkar alþingismanna óska ég honum velfarnaðar í starfi og við væntum góðs af samstarfi við nýjan ríkisendurskoðanda.