14.12.1978
Efri deild: 27. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1554 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)
100. mál, almannatryggingar
Frsm. (Bragi Níelsson):
Herra forseti. Þetta mál, sem hér er til umr., frv. til l. um breyt. á lögum nr. 67 1971, um almannatryggingar, var til umfjöllunar á einum fundi heilbr.- og trn. og voru þar allir á einu máli um að mæla með samþykkt frv. Við mælum því með að þetta frv. verði samþ. Fjarstaddir á fundi n. voru Bragi Sigurjónsson, Geir Gunnarsson og Oddur Ólafsson.