15.12.1978
Efri deild: 31. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1599 í B-deild Alþingistíðinda. (1145)

131. mál, flugvallagjald

Frsm. minni hl. (Eyjólfur K. Jónsson):

Herra forseti. Ég bið afsökunar á því að hafa ekki munað eftir því áðan, en að sjálfsögðu er það rétt að það er einhver trygging í því að féð eigi að renna beint til flugmála. Við erum auðvitað ekki mótfallin því og getum greitt atkv. með þeirri breytingu, þó við greiðum atkv. gegn frv. í heild þegar væntanlega verður búið að samþ. brtt. um hina stórfelldu hækkun.