15.12.1978
Neðri deild: 34. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1605 í B-deild Alþingistíðinda. (1158)

7. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er til staðfestingar á brbl. sem gefin voru út 5. sept. s.l.

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstj. sagði: „Til þess að koma í veg fyrir stöðvun atvinnuveganna verði þegar í stað framkvæmd 15% gengislækkun, enda verði áhrif hennar á verðlag greidd niður.“ — Í samræmi við þessa stefnu ákvað Seðlabanki Íslands 15% lækkun á gengi krónunnar til þess að bæta stöðu útflutningsatvinnuveganna og viðskiptastöðu landsins út á við. Vegna þeirrar ákvörðunar voru þessi brbl. frá 5. sept. út gefin.

Um efni frv. get ég verið stuttorður. Það er shlj. lögum þeim sem jafnan eru samþ. við lækkun á gengi krónunnar. Ég nefni þó sérstaklega 3. gr. frv., þar sem mælt var fyrir um ráðstöfun gengismunarsjóðs. Þar segir að 50% af því, sem kemur í gengismunarsjóð af andvirði frystra sjávarafurða, saltfisks, verkaðs, óverkaðs og flaka, skreiðar, fiskmjöls, loðnumjöls og loðnulýsis, skuli renna til viðkomandi deilda Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, en andvirði saltsíldar skuli vera stofnfé deildar fyrir saltsíld.

Í lögum frá 9. febr. 1978 um sama efni var ákveðið að 65% af því, sem kæmi í gengismunarsjóð af andvirði þessara afurða, skyldi renna til viðkomandi deilda Verðjöfnunarsjóðs á móti 50%.

Þá ber þess að geta, að 19. sept. s.l. var gefin út reglugerð fyrir Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins, þar sem stofnuð er deild fyrir saltsíldarafurðir innan hans. Í 2. lið 3. gr. frv. er gert ráð fyrir því, að af þeim helmingi af andvirði fyrrgreindra sjávarafurða, sem rennur til Verðjöfnunarsjóðs úr gengismunarsjóði, auk andvirðis annarra sjávarafurða, skuli 50% verða varið til að greiða fyrir hagræðingu í fiskiðnaði og 50% verða varið til að létta stofnkostnaðarbyrði eigenda fiskiskipa samkv. nánari reglum. Þær reglur voru settar með reglugerðum útgefnum af sjútvrh. 22. sept. s.l. Samkv. lögum um sama efni frá því í febr. s.l. var 35% af umræddu gengismunarfé varið til hagræðingar í fiskiðnaði og til að létta stofnfjárkostnaðarbyrði eigenda fiskiskipa á móti 50% nú. Sýnir þetta þá áherslu sem lögð er á það, að undirstöðuatvinnuvegirnir geti gengið snurðulaust.

Þetta frv. hefur verið til meðferðar í hv. Ed. og verið afgreitt þar. Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.