18.12.1978
Neðri deild: 35. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1715 í B-deild Alþingistíðinda. (1239)

138. mál, skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Eins og hv. 7. þm. Reykv. hefur tekið skýrt fram, munum við Alþfl.- menn ekki standa í vegi fyrir því, að þessi mál fái eðlilega þinglega meðferð og fari til athugunar í nefnd, en að sjálfsögðu tengist þetta við endanlega afgreiðslu fjárl. En við höfum mælst til þess, að þessi mál verði ekki endanlega afgreidd frá Alþ. eða frá þessari hv. d. fyrr en niðurstaða liggur fyrir í þeim málum. Sem sé, við munum ekki tefja þinglega meðferð þessara mála á einn eða neinn hátt.