18.12.1978
Neðri deild: 35. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1715 í B-deild Alþingistíðinda. (1240)

138. mál, skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Það er sýnilegt að frv. Alþfl. um jafnvægisstefnu kemur inn í umr. um mörg mikilvæg mál og hefur áhrif á gang tekjuöflunarmála og fjárl. Ég vil leyfa mér að beina þeirri fsp. til formanns þingflokks Alþfl., hvort við þm. eigum ekki von á því, að þm. Alþfl. flytji þetta frv. nú þegar á Alþ. eða hvort Alþfl. ætlar að bíða eftir leyfi frá Framsfl. og Alþb. til að mega flytja það.