24.10.1978
Sameinað þing: 7. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (125)

321. mál, jarðakaupalán

Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Hv. 5. þm. Norðurl. e. taldi mig fara með skakkar upplýsingar um tölu lánsumsókna sem fullgildar væru. Ég skal ekkert deila um það við hann að öðru leyti en því, að ég hef mínar upplýsingar beint frá forstöðumanni Stofnlánadeildar landbúnaðarins, Stefáni Pálssyni, sem ég hef ekki reynt að því að fara með rangt mál um slík efni. Hann gaf mér upp nú í morgun að fullgildar umsóknir væru 90 talsins sem þegar lægju fyrir.