18.12.1978
Sameinað þing: 37. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1735 í B-deild Alþingistíðinda. (1276)

54. mál, fjárlög 1979

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Þegar þessi brtt. var borin upp í fjvn., þá stóð ég í þeirri meiningu að um það hefði orðið samkomulag hjá þm. Suðurl. að gera þessa breytingu á þeim till. sem lágu fyrir í frv. Þessi till. var borin fram af meiri hl. og hún er hér flutt af hálfu fjvn. og þ. á m. mér, þannig að ég segi já. Hins vegar hefði ég talið að þetta mál hefði verið hægt að taka upp í n. og sjá til þess, að það yrði rætt þar á fundum seinna í vikunni.