18.12.1978
Sameinað þing: 37. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1736 í B-deild Alþingistíðinda. (1279)

54. mál, fjárlög 1979

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Eins og fram kom í fyrirvara þeim sem við fulltrúar Alþfl. í fjvn. gerðum, kann svo að fara að þær till., sem nú er verið að afgreiða, þarfnist endurskoðunar varðandi skoðun þess frv. til l. um jafnvægisstefnu í efnahagsmálum o.fl. sem Alþfl. hefur lagt fram í ríkisstj., en hluti þess frv. fjallar um ríkisfjármálin. Þm. Alþfl. taka allir undir þann fyrirvara við þessa atkvgr. Afstaða þeirra til afgreiðslu 4. gr. fjárl. svo og annarra greina frv., sem afgreiddar verða nú í lok 2. umr., er með hliðsjón af þessum fyrirvara. Ég ítreka þetta sjónarmið okkar Alþfl.-manna og segi já.