19.12.1978
Efri deild: 37. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1774 í B-deild Alþingistíðinda. (1332)

23. mál, tímabundið vörugjald

Eyjólfur K. Jónsson:

Herra forseti. Hæstv. fjmrh. neitaði úr þessum stól að gefa neinar yfirlýsingar um að þetta gjald yrði niður fellt. Hann sagði, að hann mundi ekki á þessu stigi gefa neinar yfirlýsingar um einstök efnisatriði. Eina leiðin til þess að vera öruggur um að þessi gjöld falli niður er þess vegna að sjálfsögðu að samþ. brtt. og því segi ég já.

Frv. samþ. með 10:5 atkv. og afgr. til Nd. Almannatryggingar, frv. (þskj. 213, n. 224). -2. umr.