19.12.1978
Neðri deild: 37. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1808 í B-deild Alþingistíðinda. (1397)
131. mál, flugvallagjald
Frsm. meiri hl. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Frv. þetta hefur einnig hlotið afgreiðslu í Ed. og tók þar allmiklum breytingum. Hér er um að ræða gjald sem hefur verið í gildi, en nú er gert ráð fyrir nokkurri hækkun á þessu gjaldi og einnig gert ráð fyrir því, að eftir að það hefur runnið í ríkissjóð á komandi ári eigi gjaldið áfram að renna til framkvæmda í flugmálum.
Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um málið og meiri hl. n. mælir með að það verði samþykkt, en tveir af þeim sem skrifa undir nál. á þskj. 237, þeir Vilmundur Gylfason og Finnur Torfi Stefánsson, skrifa undir nál. með fyrirvara.