19.12.1978
Neðri deild: 37. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1808 í B-deild Alþingistíðinda. (1398)

131. mál, flugvallagjald

Frsm. minni hl. (Matthías Á Mathiesen):

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. minni hl. fjh.- og viðskn. munu sjálfstæðismenn ekki taka þátt í þeirri skattaáþján sem nú ríður yfir þjóðina, og því leggjum við til að þetta frv. verði fellt.