24.10.1978
Sameinað þing: 8. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í B-deild Alþingistíðinda. (148)
1. mál, rannsókn landgrunns Íslands
Flm. (Eyjólfur K. Jónsson):
Herra forseti. Þriðja mál þingsins, sem nú er hér til umr., er einfalt í sniðum. Það fjallar um landgrunnsmörk Íslands til suðurs, en Alþ. lýsir því þar yfir, að ákvörðun ytri landgrunnsmarka Íslands til suðurs miðist við, að engri þjóð beri tilkall til Rokksins. Jafnframt er ríkisstj. falið að mótmæla öllum tilraunum Breta til að slá eignarhaldi á þann klett.
Í grg. fylgja þær skýringar sem þörf er á. Aðeins er rétt að bæta því við, að vart getur farið á milli mála að ágreiningur verður milli Breta, Íra, Færeyinga og Íslendinga um ákvörðun ytri landgrunnsmarka langt suður af Íslandi og þær réttarreglur sem ákvörðun slíkra marka mun hlíta þegar tímar liða og málin skýrast frekar á hafréttarráðstefnunni.
Rétt er að Íslendingar taki af öll tvímæli um að þeir viðurkenna ekkert tilkall Stóra-Bretlands til Rokksins, því að bein eða óbein viðurkenning á tilkalli Breta til þessarar nibbu gæti firrt okkur rétti þegar við gætum hagsmuna okkar á umræddu hafsvæði.
Legg ég svo til, herra forseti, að till. þessari verði vísað til hv. utanrmn.