24.10.1978
Sameinað þing: 8. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í B-deild Alþingistíðinda. (154)
Umræður utan dagskrár
Forseti (Gils Guðmundsson):
Það var að vísu ekki ætlunin af minni hálfu að opna fyrir tveggja daga umr. um tiltekið dagblað hér í bænum og fréttaflutning þess.
Ég hafði í gær leyft fsp. til hæstv. fjmrh. um vinnubrögð í sambandi við fjárlagagerð. Ég vek athygli á því, að hæstv. fjmrh. er ekki á þessum fundi. Með tilliti til þess þykir mér nú líklegt að þessar umr. utan dagskrár geti farið að styttast. En einn hefur beðið um orðið, hv. 5. þm. Reykn.