21.12.1978
Neðri deild: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1887 í B-deild Alþingistíðinda. (1542)

146. mál, heimild til lántöku vegna lánsfjáráætlunar 1978

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil undirstrika það, að hér er ekki um að ræða ákvörðun fyrri ríkisstj. um framkvæmdir, þær framkvæmdir hafa þegar verið unnar, heldur umframframkvæmdir sem framkvæmdar eru samkv. ákvörðun embættismanna án heimilda, samkv. upplýsingum sem fram hafa komið í umr. um málið í dag. Ég segi því nei.