21.12.1978
Neðri deild: 42. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1896 í B-deild Alþingistíðinda. (1558)
107. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Félmn. Nd. hefur haft til meðferðar frv, til l. um breyt. á lögum nr. 8 22. mars 1972, um tekjustofna sveitarfélaga. N. mælir einróma með að það verði samþ. óbreytt.
Lagabreyting þessi er gerð vegna þess ákvæðis í 13. gr. laga nr. 60 31. mars 1976, um skipulag ferðamála, að Ferðaskrifstofa ríkisins skuli greiða landsútsvar. C-liður 10. gr. orðist því svo: „Síldarverksmiðjur ríkisins, Landssmiðjan, Ríkisprentsmiðjan Gutenberg og Ferðaskrifstofa ríkisins.“
Undir nál. skrifa Jóhanna Sigurðardóttir, Eðvarð Sigurðsson, Páll Pétursson, Gunnlaugur Stefánsson, Stefán Valgeirsson, Gunnar Thoroddsen og Eggert Haukdal.