22.12.1978
Sameinað þing: 41. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1995 í B-deild Alþingistíðinda. (1696)

54. mál, fjárlög 1979

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Það er að verða svo, að í hvert skipti sem ég finn hvöt hjá mér til þess að gera grein fyrir atkv. mínu, þá taka þeir af mér ómakið, hv. þm. Sighvatur Björgvinsson og Stefán Jónsson, annaðhvort báðir eða annar hvor. Nú vill svo til að það var herra Sighvatur, og ég segi þess vegna nei.