22.12.1978
Sameinað þing: 41. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1997 í B-deild Alþingistíðinda. (1704)

54. mál, fjárlög 1979

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Eins og fram kom í gær lagði Alþfl. fram till. á þskj. 279 sem eina samstæða heild, þar sem gert var ráð fyrir ákveðnum afmörkuðum tilfærslum. Fram kom í umr. að fengist ekki stuðningur við þessar till. í heild, mundu þm. Alþfl. ekki greiða atkv. með einstökum liðum till. slitnum úr samhengi við aðra liði hennar. Till. sú, sem atkv. eru nú greidd um, er einn efnisliður þessara tillagna slitinn úr samhengi við alla hina. Með tilvísun til þess og þeirrar afstöðu, sem lýst var hér í gær, segi ég nei.