22.12.1978
Neðri deild: 45. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2003 í B-deild Alþingistíðinda. (1730)

Þingfrestun

Forseti (Ingvar Gíslason):

Þar sem þetta er síðasti fundurinn fyrir jólaleyfi vil ég leyfa mér að nota þetta tilefni til þess að þakka hv. þd. og þdm. gott samstarf við mig í starfi mínu sem forseti. Einnig flyt ég skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsfólki þingsins bestu þakkir fyrir vel unnin störf í þágu þessarar deildar, og sérstakar þakkir vil ég flytja varaforsetum og skrifurum fyrir mjög mikilvæga aðstoð við mig. Ég flyt öllum, sem hér hafa verið nefndir, mínar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýár.