22.12.1978
Sameinað þing: 42. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2004 í B-deild Alþingistíðinda. (1737)

Þingfrestun

Forseti (Gils Guðmundsson):

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir hans og ítreka jóla- og nýársóskir mínar. — Þessum fundi er slitið.

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson): Hinn 8. janúar var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkv. tillögu forsrh., að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda fimmtudaginn 25. jan. 1979, kl. 14.00.

Gjört í Reykjavík, 8. janúar 1979.

Kristján Eldjárn.

Ólafur Jóhannesson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Samkv. þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von, að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.