13.02.1979
Sameinað þing: 51. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2522 í B-deild Alþingistíðinda. (1973)
170. mál, áætlanagerð Framkvæmdastofnunar ríkisins um Dalabyggð
Fyrirspyrjandi (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Á þskj. 326 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv: forsrh. um áætlanagerð Framkvæmdastofnunar ríkisins um Dalabyggð. Spurt er: „Hvenær má vænta þess, að Framkvæmdastofnun ríkisins ljúki við hina svonefndu áætlun um Dalabyggð, sem kynnt var þm. Vesturlands og Vestfjarða í marsmánuði 1978?“
Að þessari áætlun hefur verið unnið nú að undanförnu. Heimamenn binda miklar vonir við þessa áætlun. Þar er vikið að ýmsum málum sem varða miklu fyrir heimabyggðina.
Eins og segir í fsp. var þetta mál kynnt þm. Vesturlands og Vestfjarða í marsmánuði 1978. Þessari áætlun var ekki dreift. Menn sáu strax að þarna var samankominn ýmiss konar fróðleikur og margþættur sem þeir höfðu þó eitt og annað við að athuga. En það hefur verið haldið áfram að vinna að þessari áætlun á vegum Framkvæmdastofnunar ríkisins.
Á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi, sem haldinn var í Munaðarnesi í nóv. s.l., kom fram mikill áhugi fundarmanna á því, að þessari áætlun yrði hraðað. Þeir, sem þar mættu á vegum Framkvæmdastofnunar ríkisins, lögðu enn fremur mikla áherslu á að ekki yrði látið sitja við orðin tóm eftir að áætlunin væri fullgerð.
Ég hygg að í þessari áætlun séu ekki mjög háar tölur. En það er nú einu sinni svo, að menn verða þreyttir á að gera áætlun á áætlun ofan, ef engin áætlun kemst svo til framkvæmda. En þetta er mál seinni tíma. Aðalatriðið er að óska eftir því og spyrjast fyrir um það, hvort þessi framkvæmdaáætlun líti ekki bráðlega dagsins ljós, hvort ekki verði lögð lokahönd á hana af hálfu Framkvæmdastofnunarinnar og hún samþ., þannig að hún komi í sjónmál með þeim hætti, að við getum athugað hana og farið svo að hugleiða hvernig koma megi henni í framkvæmd.