14.02.1979
Efri deild: 56. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2554 í B-deild Alþingistíðinda. (2008)

143. mál, lögræði

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Sú breyting á lögræðisaldri, sem frv. gerir ráð fyrir, úr 20 í 18 ár, er m.a. gerð til samræmis við löggjöf nágrannaþjóðanna um þetta efni. Allshn. hefur afhugað þetta frv. og leggur einróma til að það verði samþykkt.