21.02.1979
Efri deild: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2689 í B-deild Alþingistíðinda. (2107)
189. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Félmrh. (Magnús H. Magnússon):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er flutt til breytinga á lögum nr. 30 frá 12. maí 1970, um Húsnæðismálastofnun ríkisins, er ekki stórt mál sem þarfnast ítarlegrar framsögu. Ætla ég því ekki að hafa um það mörg orð. Tilefni þessara breytinga er það, að fram til síðustu áramóta höfðu lánveitingar til nýbygginga og til endurbygginga íbúðarhúsnæðis verið á höndum tveggja aðila. Stofnlánadeild landbúnaðarins annaðist annars vegar þessar lánveitingar til húsnæðis í sveitum, en Húsnæðismálastofnun ríkisins til allra annarra.
Á síðasta ári var tekin ákvörðun um að breyta þessari tilhögun og færa allar lánveitingar til eins aðila, þ.e.a.s. Húsnæðismálastofnunar. Varð af þessum sökum nauðsynlegt að breyta lögum um báða þessa aðila. Lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins var breytt hinn 16. maí s.l. með lögum nr. 60 frá 1978 og þá felldar niður heimildir Stofnlánadeildarinnar til íbúðarhúsalána. Tók sú breyting gildi um síðustu áramót. Nú er lagt til að gera tilsvarandi breytingar á lögum um Húsnæðismálastofnun ríkisins, nr. 30 frá 12. maí 1970. Að vísu hefur ekki verið talin þörf á því að breyta 4. gr. þeirra laga, sem fjallar um hlutverk Byggingarsjóðs ríkisins, því að þar er honum falið að annast allar lánveitingar til íbúðabygginga annarra en þeirra sem Stofnlánadeild landbúnaðarins veitir lán til. Það leiðir því af sjálfu sér, að þegar lánveitingar Stofnlánadeildarinnar falla niður tekur Byggingarsjóður ríkisins sjálfkrafa við.
Hins vegar er nauðsynlegt að gera beinar breytingar á kaflanum um sparnað til íbúðabygginga, þar sem fjallað er um sérstakar innlánsdeildir á vegum Byggingarsjóðs ríkisins um leið og verkefnið flyst til hans.
1. gr. þessa frv. gerir ráð fyrir að 3. mgr. 10. gr. laga um Húsnæðismálastofnun falli niður, en þessi mgr. hljóðaði svo:
„Tilsvarandi ákvæði gilda um þá menn utan kaupstaða og kauptúna, sem leggja á þennan hátt fé í Stofnlánadeild landbúnaðarins við Búnaðarbanka Íslands.“
2. gr. frv. gerir ráð fyrir þeirri einu breytingu á 1. mgr. 11. gr. laga um Húsnæðismálastofnun, að niður falli fyrirmæli um að skyldusparnað þeirra, sem búsettir eru í sveitum, skuli ávaxta í Stofnlánadeild landbúnaðarins við Búnaðarbanka Íslands. Verður allur skyldusparnaður eftir þessa breytingu ávaxtaður í Byggingarsjóði ríkisins.
3. gr. frv. gerir loks ráð fyrir því, að 2. mgr. 13. gr. laganna um Húsnæðismálastofnun breytist á þann veg að sérstakt gjald, sem skattyfirvöld geta ákveðið á hendur þeim sem vanrækja sparimerkjakaup, skuli renna óskipt til Byggingarsjóðs ríkisins, en ekki til Stofnlánadeildarinnar jafnframt, eins og nú er.
Herra forseti. Ég leyfi mér að leggja til, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til félmn. þessarar hv. d. og 2. umr.