21.02.1979
Efri deild: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2692 í B-deild Alþingistíðinda. (2112)

63. mál, tollskrá

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Það var ekki ætlun okkar sérstaklega að fara að gera brtt. við þetta atriði, þetta er aðeins til athugunar. Ef það verður hægt að koma þessu máli nú þegar gegnum 3. umr. og til Nd., þá vil ég ekki að sú aths., sem ég gerði áðan, verði til þess að tefja afgreiðslu málsins hér.