26.02.1979
Efri deild: 59. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2747 í B-deild Alþingistíðinda. (2163)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svo hljóðandi bréf frá ritara þingflokks Sjálfstfl.:

„Samkvæmt beiðni Guðmundar Karlssonar, 5. þm. Suðurl., sem vegna anna getur ekki nú sótt þing, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður hans, Steinþór Gestsson bóndi, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“

Steinþór Gestsson er hér gamalkunnur og býð ég hann velkominn til okkar á ný.