28.02.1979
Efri deild: 61. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2842 í B-deild Alþingistíðinda. (2259)
203. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Ég vil ekki fallast á að verið sé að fara aftan að mönnum að neinu leyti varðandi þetta atriði. Fjárlög eru löngu afgreidd, eins og mönnum er ljóst, og skýrsla um fjárfestingar- og lánsfjáráætlun hefur legið fyrir. Og ég vil ítreka það sem ég sagði áðan, að samkv. henni er gert ráð fyrir um það bil tvöfalt hærri krónutölu á árinu 1979 en 1978 til fiskvinnslunnar. Sú skerðing, sem á sér stað frá fyrri tölum, þessari tvöföldun, er sú skerðing sem í raun og sannleika er um að tala og er 400 millj., þannig að það er alls ekki um að ræða neina aðra skerðingu en þessa frá þeim áætlunum sem þegar liggja fyrir og þm. hafa fyrir framan sig.
Ég hef sagt það áður, að þetta er ekki þrautalaust, og það kemur ljóslega fram af frv. að þarna sé um skerðingu að ræða hjá þessum sjóði eins og öðrum. Það hefur ekki verið farið á bak við menn um þau efni. Og skerðingin nemur þessari fjárhæð sem tilgreind er. Ég get alls ekki fallist á að hér sé á nokkurn hátt verið að fara aftan að þm. Þetta hefur legið fyrir í skjölum þm. Það, sem um er að ræða, er að samkv. áætlunum var verið að tvöfalda fé einmitt til fiskvinnsluuppbyggingarinnar, og það er frá þeirri tvöföldun sem verið er að draga þá tölu sem hér um ræðir, 400 millj. Þó svo að sú skerðing komi til framkvæmda er um mjög mikla aukningu á fé að ræða til uppbyggingar í fiskvinnslu, eins og reyndar nauðsynlegt er.