01.03.1979
Neðri deild: 56. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2918 í B-deild Alþingistíðinda. (2310)

203. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Í framhaldi af þeim umr., sem hér hafa orðið, get ég lýst því yfir, að höfðu samráði við fjmrh. og viðskrh., að við erum sammála um að ríkisstj. beiti sér fyrir því, að Fiskveiðasjóði verði útvegað lánsfé til þess að bæta honum þá skerðingu upp á 416 millj. kr., sem hann verður fyrir samkv. þessu frv., þannig að heildarumsvif hans samkv. lánsfjáráætlun verði óhreytt.