31.10.1978
Sameinað þing: 11. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (251)

326. mál, niðurskurður fjárframlaga 1978

Fjmrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Ég vil beina því til forseta, að hann frestaði málinu þegar umr. er lokið. Ég mun afla þeirra upplýsinga, sem beðið hefur verið um, og sundurliða þær upphæðir, sem hér er um að ræða, nánar en gert er í þessu svari. Ég hef ekki tiltækar upplýsingar í þá átt frekar en liggur í skriflega svarinu.