15.03.1979
Sameinað þing: 69. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3271 í B-deild Alþingistíðinda. (2580)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Gils Guðmundsson):

Áður en lengra er haldið vil ég taka það fram, að ég tel óeðlilegt að hér hefjist almennar umr. um frv., sem lagt hefur verið fram í Ed. Alþingis. Þær umr. utan dagskrár, sem hér kunna að fara fram, hljóta því að snúast um formsatriði þessa máls, en ekki efnisatriði þess frv. sem lagt hefur verið fram í Ed. og væntanlega verður tími til að ræða ítarlega í næstu viku.