20.03.1979
Sameinað þing: 70. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3412 í B-deild Alþingistíðinda. (2650)

339. mál, útgáfa fiskikorta

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Út af því, sem kom fram hjá fyrirspyrjanda og hæstv. ráðh. í sambandi við fjárveitingar til fiskikortagerðar, þá vil ég upplýsa það, að þetta mál var tekið upp í fjvn. og á það bent að Alþ. hefði samþykkt um þetta sérstaka þál. Þetta mál var tekið upp af fulltrúum minni hl. í fjvn., en það fékk ekki náð fyrir augum annarra nm. í fjvn. og því fór sem fór, að ekki var ætlað fé til þessa nauðsynjamáls á fjárl. í ár. Ég vildi aðeins að þetta kæmi hér fram.