26.03.1979
Neðri deild: 67. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3580 í B-deild Alþingistíðinda. (2789)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Gils Guðmundsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 27. mars 1979.

Ritari þingflokks Sjálfstfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Lárusar Jónssonar, 6. þm. Norðurl. e., sem nú er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður hans, Halldór Blöndal blaðamaður, taki á meðan sæti hans á Alþingi“.

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Halldór Blöndal hefur áður tekið sæti á þessu þingi og býð ég hann velkominn til starfa.