28.03.1979
Neðri deild: 68. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3698 í B-deild Alþingistíðinda. (2877)
22. mál, Framkvæmdasjóður öryrkja
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Þegar mál þetta var hér til 1. umr. 6. nóv. 1978 leyfði ég mér að gera nokkrar aths. og ábendingar um efni þess. Nú er það svo að þrátt fyrir þetta, — og ég vil undirstrika að þetta gerði ég í góðum tilgangi vegna þess að ég er vissulega sannfærður um að hér er hreyft góðu málefni, — þá hafði ég löngun til þess að gera ábendingar sem gerðu það líklegra að málið næði fram að ganga. Þrátt fyrir það að hv. félmn. hafi haldið 7 nefndarfundi og boðað á sinn fund svona annan hvorn málsmetandi mann í borginni, þá hefur ekkert af því, sem ég leyfði mér að benda á, fundið náð fyrir augum n., ef undan er skilið það ákvæði í c-lið 3. gr. þar sem rætt er um skemmtanaskatt. Ég er mjög óhress yfir því, að svo skuli hafa tekist til að ég sjái mig neyddan til þess að vera á móti svo góðu máli og svo glæsilegum flm. sem að því er. En það er það eina sem ég get gert, því að það hefur ekki verið hægt að taka neitt af þeim ábendingum, sem ég áðan nefndi, til greina.
Ég vil benda á það og kannske alveg sérstaklega hæstv. heilbrrh., að þegar þetta mál var hér til meðferðar til 1. umr. var nóvembermánuður rétt að byrja, þá voru fjárlög með öllu óafgreidd, var nýlagt fram frv. sem átti eftir að taka verulegum breytingum, eins og allir hv. þdm. hljóta að vita. Þrátt fyrir þetta, þrátt fyrir þær ábendingar sem fram komu við 1. umr., ekki frá mér einum, heldur mörgum hv. þm. öðrum, varð ég a. m. k. ekki var við nokkra tilburði til þess hjá hæstv. ráðh. að fá inn í fjárlög ákvæði um framkvæmd þeirra laga sem heyra undir hann og Alþ. hefur áður sett. Ég varð ekki var við að það væri gerð tilraun til þess, enda upplýsti hæstv. ráðh. áðan, ef ég hef tekið rétt eftir, að mál þetta hefði ekkert verið athugað í hæstv. ríkisstj. Ég verð að segja að ég hefði talið það skyldu ráðh., sem fer með mál þessa eðlis sem Alþ. hefur sett lög um, að hann gerði a. m. k. heiðarlega tilraun til þess að fá Alþ. til þess að leggja af mörkum það fjármagn sem er nauðsynlegt til þess að framkvæma þau ákvæði sem hér um ræðir. Og ég vil eindregið hvetja til þess, að þessu máli verði nú vikið til hliðar og þess verði freistað að fá fjármagn til þessara hluta eftir því sem ég vil kalla eðlilegum leiðum, ekki að leggja á markaðan tekjustofn einu sinni enn. Það er áreiðanlega ekki rétt leið. Það á að meta útgjaldaþörf hvers einstaks gjaldaliðs hjá ríkissjóði og þjóðinni, það á að reikna með þeim nauðsynlegu fjármunum við gerð fjárl., ekki að láta kylfu ráða kasti með það hversu mikið fjármagn fæst til tiltekinna verkefna, eins og gert er með því að fjármagna þá með mörkuðum tekjustofnum.
Það veit raunar enginn hvað þessi leið muni gefa. Hvað gefur þessi leið? Ekki veit ég það? Fer það ekki eftir því hversu mikið selst af tiltekinni vöru? Mér sýnist það. Aðaluppistaðan í fjármögnun þessa máls er álag á áfengi og tóbak. Er hægt að tryggja að nægilega sé drukkið til þess að þessi mál komist í þá höfn sem þau eiga skilið að fara? Ég dreg það mikið í efa, ekki síst þegar haft er í huga að ríkissjóður metur það áreiðanlega í hámarki hvað áfengi og tóbak megi kosta til þess að óhætt sé að setja það verð á. Ég held að það sé engin samúð með þeim, sem kaupa þá vöru, að finna í hæstv. stjórnarráði, eða ég hef ekki orðið var við það. Hvar á svo að draga mörkin þegar rætt er um markaða tekjustofna til þess að standa undir útgjöldum ríkissjóðs? Ég veit það ekki. Ætlar hv. Alþ. í hverju einstöku tilviki að skera úr um það, að eitt mál, sem Alþ. sjálft hefur samþykkt, sé svo miklu nauðsynlegra en næsta mál að það beri brýna nauðsyn til að fjármagna það með þessum hætti, en ekki að eiga það undir Alþ. við fjárlagagerð, hvort það fáist fjármagn til þess eða ekki.
Ég skal ekkert teygja þessa umr. neitt, herra forseti. Ég hef lýst skoðun minni á þessu máli, og ég harma að hv. n. hefur ekki séð sér fært að taka að neinu leyti tillit til þeirra ábendinga sem ég leyfði mér að gera. Ég harma það einnig að þurfa að vera á mót svo góðu máli.