28.03.1979
Neðri deild: 68. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3708 í B-deild Alþingistíðinda. (2885)

22. mál, Framkvæmdasjóður öryrkja

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Það er aðeins til að leiðrétta smámisskilning milli mín og hv. 12. þm. Reykv., Jóhönnu Sigurðardóttur. Ástæðan fyrir því, að ég sætti mig við þá fjáröflun sem hér er gert ráð fyrir, er sú, að hún sannfærði mig um að sá meiri hl., sem nú er á Alþ., mundi ekki að öðrum kosti ætla fé til þessarar starfsemi. Af þeim sökum er mér nauðugur einn kostur.