04.04.1979
Efri deild: 76. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3854 í B-deild Alþingistíðinda. (3047)
243. mál, jarðræktarlög
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég skal ekki verða langorður. Tilefni er ekki til þess að lengja þessar umræður við 1. umr. málsins.
Hæstv. ráðh. vék að nokkrum atriðum sem ég kom inn á. Kvað hann geta verið einhvern misskilning hjá mér varðandi það sem ég sagði um frv. þetta og að meginefni frv. væri ákvæði til bráðabirgða. Ég tók eftir því, þegar ég las frv., að 3. og 4. gr. eru til bráðabirgða, en þó svo sé breytir það ekki í neinu þeirri röksemdafærslu sem ég hafði varðandi málið.
Hæstv. ráðh. sagði að jarðræktarlögin, sem nú gilda, væru framleiðsluhvetjandi, og skal ég ekki mótmæla því, og þeir, sem vildu minnka landbúnaðarframleiðsluna, yrðu að sýna í verki að þeir meintu það, ég er hæstv. ráðh. líka sammála um það. En það var eitt meginatriði í gagnrýni minni á frv. þetta, að ýmsar þær ráðstafanir, sem ráð er fyrir gert, séu þess eðlis að þær orki tvímælis og líklegt sé að þær auki á framleiðslukostnað og ýmsa erfiðleika í landbúnaðinum. En það hlýtur að þýða dýrari landbúnaðarvörur og að öðru jöfnu minni sölu á landbúnaðarvörum og getur þess vegna á vissan hátt stuðlað að því að auka þann vanda sem við erum í, en ekki að leysa.
Hæstv. ráðh. vék nokkuð að því sem ég sagði um stærðarmörk Stofnlánadeildarinnar. Ég held að hann hafi misskilið það sem ég sagði. Ég átti ekki við að það ætti ekki að breyta stærðarmörkum í þessum efnum, sem hér um ræðir. Ég átti við að það ætti ekki að fara eftir stærðarmörkum Stofnlánadeildar landbúnaðarins, sem gætu líka verið breytileg eftir því hvað stjórn Stofnlánadeildarinnar ákvæði á hverjum tíma. Ég taldi að það væri rétt að setja stærðarmörk í sérstaka reglugerð til þess að tryggja að fyllsta samræmis væri gætt milli jarðræktarlaga og laga um Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Einhver fleiri atriði kann að vera að hæstv. ráðh. hafi minnst á, en ég hygg að þau hafi verið minni háttar. Eins og ég sagði í upphafi máls míns, sé ég ekki ástæðu til þess að lengja umr. frekar við 1. umr. um frv.