06.04.1979
Efri deild: 80. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3989 í B-deild Alþingistíðinda. (3128)

223. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Frsm. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Þetta frv. var afgr. eintóma frá hv. Nd. til þessarar deildar. Félmn. hefur fjallað um málið og leggur til að það verði samþ. Mér er kunnugt um að utan þings er mikill stuðningur hjá fjölmörgum aðilum við það efni sem hér er á ferðinni. Ég legg því eindregið til fyrir hönd n. að frv. verði samþ. og afgr. sem fyrst héðan frá hv. deild.