07.05.1979
Sameinað þing: 88. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4360 í B-deild Alþingistíðinda. (3479)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Gils Guðmundsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 4. maí 1979.

Stefán Jónsson, 4. þm. Norðurl. e., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Norðurlandskjördæmi eystra, Soffía Guðmundsdóttir tónlistarkennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Þorv. Garðar Kristjánsson,

forseti Ed.

Hér liggur fyrir kjörbréf til handa frú Soffíu Guðmundsdóttur varaþm., og æski ég þess, að kjörbréfanefnd taki það til athugunar, og gef 7 mínútna fundarhlé á meðan kjörbréfið er athugað. — [Fundarhlé.]