07.11.1978
Sameinað þing: 15. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í B-deild Alþingistíðinda. (353)
Umræður utan dagskrár
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Ég vildi aðeins taka undir það sem fram hefur komið hjá hv. fjvn.-mönnum um það sem gerðist á fundi fjvn. í morgun út af því máli, sem hér er rætt utan dagskrár. Það er alveg ljóst, að í þessu máli hefur ekki verið farið eftir þeim leikreglum sem fjvn, og Alþ. hafa sett í sambandi við mannaráðningar ríkisins, og gildir þá einu hvort um er að ræða ráðningu aðstoðarmanna ráðh. eða blaðafulltrúa ríkisstj. eða hvern þann sem er ráðinn fastráðningu í þjónustu ríkisins.
Um þetta hafa verið settar ákveðnar reglur sem komu mjög glöggt fram í máli hv. þm. Sighvats Björgvinssonar, að um er að ræða tvær leiðir í þessu efni, að ráðningarnefnd fjalli um málið og samþykki það eða þá fjvn. og Alþ. taki afstöðu til þessara mála. Nú er ekki fyrir það að synja að stundum hefur viljað brenna við að menn hafi verið ráðnir í þjónustu ríkisins fastráðningu án þess að þessir aðilar hafi verið um það spurðir og stundum verið í þjónustu ríkisins um lengri eða skemmri tíma þannig ráðnir, annaðhvort af ráðuneytisstarfsmönnum eða af viðkomandi ráðh. Þessu hefur hins vegar verið reynt að kippa í lag á undanförnum árum.
Hv. alþm. vita, að samin hefur verið sérstök starfsmannaskrá yfir fastráðna starfsmenn ríkisins. Árlega er farið mjög nákvæmlega yfir þá skrá og reynt að koma í veg fyrir að ráðnir séu menn til ríkisins með ólögmætum hætti. Allt er þetta að sjálfsögðu gert til þess að reyna að koma í veg fyrir að ríkisbáknið þenjist út svo að óviðráðanlegt sé. Það kastar hins vegar tólfunum í þessum efnum þegar hæstv. forsrh. gengur á undan og þverbrýtur þessar reglur sem verið er að biðja okkur, sem gegnum störfum í hv. fjvn. og hér á hinu háa Alþ. að fara eftir. Ég tek eindregið undir það með hv. þm. Sighvati Björgvinssyni, að hér er um hið alvarlegasta mál að ræða.
Það er nú kannske að bera í bakkafullan lækinn að minna á það, sem kom fram hjá hæstv. samg.- og menntmrh. Hann fer með staðlausa stafi, sé miðað við það sem hæstv. fjmrh. staðhæfði. Menntmrh. segir að í ríkisstj. hafi aldrei verið fjallað um það mál að ráða blaðafulltrúa til ríkisstj. Ég skal ekki gerast dómari um það hvor hefur rétt fyrir sér. Ég vildi aðeins benda á að hér er um að ræða eina af mörgum þversögnum í yfirlýsingum hæstv. ráðh. út af því fjárlagafrv. sem svo síðbúið var á þingi í ár sem hv. alþm. vita. Í rauninni veit enginn hvort verið er að fjalla um þetta frv. sem frv. hæstv. ríkisstj., sem stjfrv., eða sem frv. hæstv. fjmrh.