08.05.1979
Efri deild: 90. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4461 í B-deild Alþingistíðinda. (3535)

273. mál, framlag Íslands til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Frsm. (Jón Helgason):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um heimild til hækkunar framlags Íslands til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Efni þessa frv. er að Íslendingar haldi hlutfalli sínu, kvóta sínum, hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, þrátt fyrir þær hækkanir sem ákveðnar hafa verið á upphæðum þar.

Fjh.- og viðskn. var sammála um að mæla með samþykkt þessa frv. eins og það liggur fyrir.