08.05.1979
Efri deild: 90. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4462 í B-deild Alþingistíðinda. (3541)

65. mál, kosningar til Alþingis

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Mig langar að þakka allshn. fyrir afgreiðslu þessa máls. Þó að það láti lítið yfir sér er það mikilvægt fyrir vissan hóp sjónskertra. Mér þykir vænt um að málið er komið þetta áleiðis og vona að það fái greiðan gang héðan.