07.11.1978
Sameinað þing: 15. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 423 í B-deild Alþingistíðinda. (356)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Friðjón Þórðarson):

Út af orðum hv. síðasta ræðumanns leyfir forseti sér að taka fram, að honum var tjáð að hæstv. fjmrh. hefði tekið að sér að svara fyrir hæstv, forsrh. í þessu máli. Var það síðan staðfest í viðtali sem forseti átti við hæstv. fjmrh., sem tekur næstur til máls.