07.11.1978
Sameinað þing: 15. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í B-deild Alþingistíðinda. (363)
Umræður utan dagskrár
Fjmrh. (Tómas Árnason):
Herra forseti. Það verður ekki sagt með neinum rétti, að ég sé einfaldur í dag, þar sem ég þarf að svara fsp. utan dagskrár vegna lögmætra fjarvista annarra ráðherra.
Í sambandi við þetta mál vil ég taka það fram, að með reglugerð, sem viðskrn. gaf út 26. jan. 1976, voru kex og brauðvörur tekin af frílista. Þessi ákvörðun var tekin til þess að spara gjaldeyri, en gjaldeyrisástandið var þá mjög erfitt eftir gífurlegan greiðsluhalla gagnvart útlöndum á árunum 1974 og 1975. Því hefur verið haldið fram, að þessi ráðstöfun hafi verið gerð til þess að gera Sambandi ísl. samvinnufélaga kleift að reisa kexverksmiðju. Enginn fótur er fyrir þeirri staðhæfingu. Samband ísl. samvinnufélaga sótti um lántökuheimild til ríkisstj. á sínum tíma til þess að kaupa vélar í kexverksmiðju, og leyfi var gefið til lántökunnar 21. febr. 1977 eða meira en ári eftir að ákvörðun hafði verið tekin um að taka kex og brauðvörur af frílista. Sambandið taldi sig þurfa að reisa kexverksmiðju til þess að geta fullnægt þörfum kaupfélaganna eftir að innflutningur á kexi hafði verið takmarkaður. Má því segja að bygging kexverksmiðju Sambandsins hafi verið afleiðing af innflutningshöftum á kexi, en ekki öfugt.
Með hliðsjón af þessu sé ég ekki ástæðu til að hlutast til um sérstaka rannsókn á þessu máli. Að sjálfsögðu hefur dagblaðið Vísir sínar skoðanir sem ég álít að hafi ekki við nein rök að styðjast.
Ég endurtek að ég sé ekki ástæðu til þess að láta fara fram sérstaklega rannsókn út af þessum ummælum og fullyrðingum blaðsins, sem ég álít að séu blaðinu ekki til neins vegsauka. Hins vegar er eðlilegast að hæstv. dómsmrh. fái tækifæri til að ræða þetta síðar, þegar hann hefur lokið embættisferðum sínum.